Ályktun stjórnar Cruise Iceland vegna afnáms tollfrelsis á hringsiglingar 1. janúar 2025
Cruise Iceland og aðildarfyrirtæki hafa lýst yfir verulegum áhyggjum af ákvörðun stjórnvalda um að afnema tollfrelsi skemmtiferðaskipa á hringsiglingum sem taka á gildi 1. janúar nk. Ákvörðuninni hafði verið frestað um eitt ár vegna viðvarana frá Cruise Iceland og annarra hagaðila en nefndarálit meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar mælti fyrir um frestun afnámsins. Í álitinu um gildistöku ákvæðisins, í lögum nr. 88/2005, þar sem 2. málsliður b-liðar 1. töluliðs 1. málsgreinar 6. greinar laganna var felldur brott, var því beint til stjórnvalda að taka málið aftur til skoðunar í samráði við hagsmunaaðila og að brýnt væri að meta fjárhagslegar afleiðingar afnáms tollfrelsisins. Þetta hefur enn ekki verið gert og nú eru aðeins þrír mánuðir þangað til tollfrelsið verður afnumið með ómældum skaða fyrir íslenska ferðaþjónustu og tengda hagaðila.

Stjórn Cruise Iceland hefur því samþykkt eftirfarandi ályktun:
Það er á forræði stjórnvalda að leggja mat á íþyngjandi efnahagsleg áhrif fyrir íslenskt atvinnulíf og ábyrgð kjörinna fulltrúa er mikil ef ákvörðunin leiðir til höggs á íslenska ferðaþjónustu og ekki síst ef brothættar byggðir verða verst úti eins og útlit er fyrir en þær njóta heimsókna skipafélaga á hringsiglingu sérstaklega. Þar sem stjórnvöld hafa ekki enn lagt mat á tjónið af aðgerðinni hvetur Cruise Iceland til þess að afnámi tollfrelsisins verði frestað um tvö ár á meðan lagt er fullt mat á hagræn áhrif þess. Hér fyrir neðan má sjá mjög varlega áætlaðar tekjur af hringsiglingum sem stefnt er í voða með ákvörðun stjórnvalda.  

Samtals beinar tekjur af hafnargjöldum, áætlaðri eyðslu ferðamanna, opinberum gjöldum, olíusölu, flugfargjöldum og þjónustu vegna hringsiglinga á Íslandi: Kr.   10.785.174.406

 

 


Aðildarfélagar Cruise Iceland eru eftirfarandi:
Hafnir á Akranesi, Akureyri, Djúpavogi, Eskifirði, Neskaupsstað, Grímsey, Grundarfirði, Hafnarfirði, Hrísey, Húsavík, Höfn, Ísafirði, Raufarhöfn, Reykjanesi, Reykjavík, Sauðárkróki, Hofsós, Seyðisfirði, Borgarfirði eystra, Siglufirði, Skagaströnd, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum, Vesturbyggð og Þorlákshöfn.

Þjónustufyrirtækin Samskip, Gára, Atlantik, Iceland Travel, Nonni Travel, Arctic Adventures,  Ekran, Norðurflug, Vesturferðir, Skeljungur og SDK group.