Síðastliðið ár var eitt hið viðburðarríkasta á rúmlega 20 ára ferli Cruise Iceland. Ekki aðeins var háð barátta við stjórnvöld eftir fyrirvaralausa álagningu starfsstjórnar Sjálfsstæðisflokksins og Framsóknarflokksins vegna innviðagjalds heldur var einnig unnið í því að fá tollfrelsi skemmtiferðaskipa í hringsiglingum framlengt. Á sama tíma var samstarf skipafélaganna við félaga okkar hringinn í kringum landið styrkt með nokkrum heimsóknum fulltrúa þeirra undir handleiðslu Cruise Iceland.
Málaflokkur skemmtiferðaskipa fékk mikla athygli á liðnu ári á Íslandi, bæði vegna innviðagjaldsins sem fékkst lækkað úr 2500 krónum á sólahring á mann í 1600 krónur og eins vegna fyrirhugaðs afnám tollfrelsis. Með stuðningi allra flokka á þingi og ötullar baráttu þingmanna og sveitastjórnarfólks á landsbyggðinni höfðust bæði málin í gegn undir lok síðasta árs.
Það er þó ljóst að ákvarðanir fyrri ríkisstjórnar hafa reynst mjög skaðlegar og það mun taka tíma að skapa traust skipafélaganna á ný til íslensk gjaldaumhverfis. Flest skipafélög hafa hins vegar tekið við sér eftir gott samráð við núverandi stjórnvöld og eigum við því von á því að bókunum muni fjölgi hægt og rólega á næsta ári 2027 með góðum væntingum fyrir 2028 og 2029 sérstaklega.
Mikil fjölmiðlaumfjöllun um innviðagjaldið
Fjölmiðlaumfjöllun ársins var mjög lituð af þessum baráttumálum okkar og landsbyggðarinnar. 518 fréttir birtust í veffréttamiðlum landsins og fjallaði yfirgnæfandi meirihluti þeirra um neikvæð áhrif hinnar óvæntu gjaldtöku á skemmtiferðaskip. Aðeins 4,4% frétta voru neikvæðar í garð skemmtiferðaskipa og fjölluðu þær fréttir (23 af 518) um dýpkun Viðeyjarsunds vegna stórra skemmtiferðaskipa, fjölgun verkefna í landamæraeftirliti, hvalshræ sem blasti við farþegum, gagnrýni formanns FHG sem þekkt er orðin og um afbókanir í skipakomum vegna skattahækkana stjórnvalda.
Virði umfjöllunarinnar er metin, samkvæmt alþjóðlegum staðli, um 35 milljónir íslenskra króna og átti hún sér að mestu stað undir lok maí, mánaðarmótin júni og júlí og svo fór hún á fullt skrið 13. ágúst og hélt fullum dampi út árið, á meginstraumsmiðlum sem héraðsmiðlum. Þá eru ótalin fjöldi útvarps- og sjónvarpsviðtala sem núverandi framkvæmdastjóri Cruise Iceland tók yfir árið.
Margir tugir tjáðu sig um málefni skemmtiferðaskipa, um allt land, enda um mjög mikla hagsmuni að ræða þar sem skipin heimsóttu 33 hafnir og áfangastaði á árinu 2025 í 1182 skipakomum. Allt frá Þórshöfn á Langanesi í austri til Keflavíkur í vestri og Grímseyjar í norðri til Vestmannaeyja í suðri. Alls fluttu skipin 333.394 farþega sem dreifðust mjög vel um landið allt og á áfangastaði sem sannarlega eru utan alfaraleiðar eins og Djúpavík á Ströndum, Grímsey, Flatey í Breiðafirði, Vigur í Ísafjarðardjúpi, Raufarhöfn og Drangey í Skagafirði.
Vestfjarðarfjórðungur, sem að öllu jöfnu hefur verið utan alfaraleiðar ferðamanna, er áfangastaður rúmlega 250 þúsund ferðamanna sem koma með skemmtiferðaskipum stórum sem og smáum leiðangursskipum og er dæmi um landshluta sem fær lítið af ferðamönnum af hringveginum og nánast enga með flugi.
Miklir hagsmunir í þjónustu við skemmtiferðaskip
Hagsmunir ferðaþjónustunnar og samfélaganna sem þjónusta skipin eru umtalsverðir. 4.335.687.186 krónur greiddu útgerðir skemmtiferðaskipa í hafnar- og sveitasjóði landsins á árinu. Efnahagsleg áhrif geirans hafa verið metin 40 milljarðar á ári en eru líklega nær 60 milljörðum fyrir ár eins og 2025.
Í mjög mörgum tilfellum eru tekjur af skemmtiferðaskipum lunginn af tekjum hafnanna sem gerir þeim kleift að halda úti mikilvægum innviðum og starfsemi til hagsbóta fyrir öll skip og báta sem reiða sig á hafnir og þjónustu allt árið um kring.
Fyrir minni hafnir sem og áfangastaði sem ekki eru á suðvesturhorninu þar sem ferðamenn eru flestir skipta smærri skip mjög miklu máli, bæði í millilandasiglingum og svokölluðum hringsiglingum. Skipin í hringsiglingum höfðu komið í kjölfar þess að tollfrelsi var tryggt í komum skipanna með lagasetningu á Alþingi 2012. Ríkisstjórn Sjálfsstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna afnam hins vegar tollfrelsið og skapaði þannig óvissu sem var að mestu rutt úr vegi seint á síðasta ári með stuðningi allra flokka á þingi. Óvissan hefur því miður samt valdið alvarlegri fækkun í hafnarkomum þessara minni skipa á minni hafnir landsins.
Heildstæða samantekt á tölfræði fyrri ára er því miður ekki til staðar, en sem dæmi má nefna að á minni höfnum eins í Flatey á Breiðafirði fækkaði komunum úr 14 komum árið 2024 í aðeins 4 komur árið 2025. Eins má nefna höfnina á Patreksfirði sem fór úr 26 komum í 7 komur á árinu 2025. Bókunarstaðan hjá höfnum landsins bendir sem stendur til þess að enn frekari fækkun verði í skipakomum á smærri hafnir og áfangastaði.
Ekki er fullur sigur hafður enn því óljóst er hverju tollfrelsið skilar eitt og sér ef skip í hringsiglingum greiða samt sem áður virðisaukaskatt af öllu en framkvæmd tollfrelsisins frá 2012 var þannig að hringsiglingar voru undanskildar í 4 mánuði á ári.
Bókunartölur í töflu að neðan eru fengnar úr samræmdu bókunarkerfinu Dokk, sem Faxaflóahafnir annast rekstur á fyrir íslenskar og færeyskar hafnir.