Undir lok árs samdi Cruise Iceland við Íslandsstofu um kynningu á Íslandi sem áfangastað. Samningurinn við Íslandsstofu felur í sér að unnið er að því að auka vitund um Ísland sem áfangastað skemmtiferðaskipa á völdum markaðssvæðum og að unnið verði að aukinni nýtingu farþega skipanna á íslenskri afþreyingu og þjónustu. Þá er einnig markmið samningsins að stuðla að ábyrgri ferðahegðun farþega skemmtiferðaskipa og sjálfbærni í þessari tegund ferðamennsku en Cruise Iceland hefur undanfarin ár upplýst skipulega um þá stefnu skipafélaganna.
Skemmtiferðaskipageirinn hefur farið á undan með góðu fordæmi á Íslandi og er flestum hagaðilum orðið ljóst í kjölfar mikillar umræðu á síðasta ári vegna innviðagjalds að farþegar af skemmtiferðaskipum eru skipulagðasti hluti ferðaþjónustunnar á Íslandi. Með tveggja til þriggja ára fyrirvara er vitað hvað koma margir farþegar á hvaða stað og á hvaða tíma, niður á klukkustund og eru áfangastaðir því vel undirbúnir því að taka á móti ferðamönnum af skipum.
Almennt hefur verið lögð mikil áhersla af hálfu útgerða skemmtiferðaskipa og samtakanna AECO og CLIA að mörk séu sett á fjölda ferðamanna sem komi í hverja höfn, ferðamenn fari sem víðast um landið og jafnvel hafa verið settar reglur um umgengni á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Þá hefur geirinn einnig ítrekað sagt að hann vilji leggja sitt af mörkum til uppbyggingar í landinu en það eina sem hann þarfnist á móti sé stöðugleiki og stuðningur.
Markmið geirans falla því mjög vel að markmiðum íslenskrar ferðaþjónustu og samfélagsins alls en slík sátt telur með hverju árinu líka meira í augum erlendra ferðamanna.
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland handsöluðu samninginn undir lok árs.