Cruise Iceland hélt aðalfund sinn þann 12. mars sl. 2026 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni og hefur fundurinn aldrei verið jafn vel sóttur, en 54 fulltrúar frá 30 aðildarfyrirtækjum mættu.
Sigurður Jökull Ólafsson flutti erindi á fundinum sem fyrsti framkvæmdastjóri Cruise Iceland, um verkefni síðasta árs. Hann greindi frá miklum breytingum síðan hann tók við starfi haustið 2025 en fram að því hafði hann verið starfandi stjórnaformaður Cruise Iceland. Það var til dæmis stórt skref þegar skrifstofa var opnuð í Borgartúni 35 – í Húsi atvinnulífsins sem hefur þýðingu fyrir samlegðaráhrif við önnur hagsmunasamtök í húsinu, þá fyrst og fremst Samtök ferðaþjónustunnar. Í skýrslu framkvæmdastjóra fjallaði hann einnig um mikla fjölmiðla umfjöllun um gengi greinarinnar síðastliðna tólf mánuði en 468 fréttir birtust um hagsmuni skemmtiferðaskipa í veffréttamiðlum og þá eru ljósvakamiðlarnir ótaldir.
Umfjöllun fjölmiðla um skemmtiferðaskip hefur breyst mikið undanfarin tvö ár og hefur hún snúist frá takmarkaðri umfjöllun um losun gróðurhúsalofttegunda og átroðning ferðamanna yfir í umfjöllun um mikilvægi tekna frá geiranum á landsbyggðinni sérstaklega og þá staðreynd að farþegar skemmtiferðaskipa eru grunn undirstaða uppbyggingar í ferðaþjónustu víða á landsbyggðinni. Dæmi eru um, t.d. í hvalaskoðun, að 90% viðskiptavina séu ferðamenn af skemmtiferðaskipum.
Samtökunum hefur einnig gengið vel á undanförnum árum að taka á misskilningi sem byggðist á skorti á gögnum og upplýsingum. Þannig hafa t.d. loftgæði verið mæld víða sem sýnt hefur fram á að útblástur skipanna er vel innan viðmiðunarmarka. Einnig hafa samtökin aflað gagna um eyðslu ferðamanna á skemmtiferðaskipum og hefur hún reynst miklum mun meiri en upphaflega var talið, en þar vega skiptifarþegar til að mynda þungt, enda kaupa þeir einnig flug og hótelgistingu í landi til viðbótar við ferð með skemmtiferðaskipi.
Stjórnarformaður Cruise Iceland, Unnur Elva Arnardóttir, þakkaði einnig Aðalheiði Borgþórsdóttur fráfarandi stjórnarmanni góð störf fyrir samtökin undanfarin 30 ár, en Aðalheiður hefur setið fyrir hönd hafna Múlaþings í stjórninni.
Ingi Þór Guðmundsson frá Nonna Travel var fundarstjóri og Þorleifur Þór Jónsson frá Íslandsstofu fundarritari. Emma Kjartansdóttir varaformaður samtakanna og gjaldkeri fór yfir ársreikning samtakanna.
Samstarf við erlenda samstarfsaðila, jafnt skipafélögin sjálf sem og samtök þeirra, CLIA og AECO, hefur verið mikið á starfsári stjórnar, með fjölmörgum fundum, og meirihluta þeirra á landsbyggðinni í þeim tilgangi að miðla til stjórnvalda þeim áhyggjum sem hagaðilar samtakanna á landsbyggðinni höfðu af gjaldtöku stjórnvalda.
Ingvar Örn Ingvarsson, ráðgjafi hjá Instrument/Cohn & Wolfe á Íslandi og talsmaður samtakanna, flutti kynningu á því starfi sem unnið hefur verið í sambandi við hagaðila- og almannatengsl og hvernig staðið var að stefnu samtakanna varðandi aukna gjaldtöku stjórnvalda.
Fram komu einnig fyrirspurnir frá félögum um virðisaukaskattsmál og eins um tollfrelsi. Var þeim svarað eins og kostur er, en margt í þessari vinnu er enn óljóst þrátt fyrir mikla vinnu bæði skrifstofunnar og lögfræðistofa. Ljóst er þó að hluti af vanda skipafélaganna felst í því gríðarlega skrifræði sem felst í virðisaukaskattskyldu þrátt fyrir að um lítinn eða jafnvel engan ávinning sé að ræða fyrir ríkissjóð.
Félögum fjölgar jafnt og þétt
Nýir aðildarfélagar voru boðnir velkomnir í samtökin sem telja nú 39 meðlimi sem koma úr fjölbreyttum hópi fyrirtækja og skipulagsheilda sem þjónusta skemmtiferðaskipin og farþega þeirra á margvíslegan hátt. Nýjustu meðlimir Cruise Iceland voru boðnir velkomnir á fundinum en þau voru, Prime Tours, Skógarböðin, Hreyfill, Bus Travel, Grandasamtökin, og OLÍS.
Ný stjórn kosin
Nýir stjórnarmeðlimir fyrir 2026 voru kosnir, Blængur Blængsson (Samskip), Emma Kjartansdóttir (Iceland Travel), Eldar Ástþórsson kom nýr inn í stjórn (Faxaflóahafnir), Íris Jóhannsdóttir (Gára), Sigurður Pétur Ólafsson kom aftur inn í stjórn (Hafnarsamlag Norðurlands), Rúnar Gunnarsson (Múlaþing) og Unnur Elva Arnardóttir (Skeljungur). Varamenn voru kosnir Anita Elefsen (Siglufjarðarhöfn), Hafsteinn Garðarsson (Grundarfjarðarhöfn), og Hilmar K. Lyngmo (Ísafjarðarhöfn).
Nýkjörin stjórn skipti með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar, þar sem Unnur Elva Arnardóttir var kosin stjórnarformaður og Emma Kjartansdóttir var kosin varaformaður. Anita Elefsen sem kemur aftur í stjórn eftir nokkurra ára hlé var kosin ritari stjórnar.