Um 60 fulltrúar úr stjórnsýslu, sveitarfélögum, ferðaþjónustu, hafnarsamfélögum og skemmtiferðaskipageiranum komu saman á morgunverðarfundi CLIA (Cruise Lines International Association) í Fantasíu, Vinnustofu Kjarval, við Austurstræti þann 26. maí. Fundurinn var haldinn í samstarfi við Cruise Iceland og var markmið hans að ræða stöðu og framtíðarhorfur skemmtiferðasiglinga til Íslands á tímum mikilla breytinga á rekstrarumhverfi greinarinnar.
Meðal gesta voru fulltrúar ráðuneyta, sveitarfélaga, hafna og ferðaþjónustunnar víðs vegar af landinu, auk stjórnenda frá CLIA, AECO og nokkrum af stærstu skemmtiferðaskipaútgerðum heims. Þá tóku einnig þátt í panil Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings, Bruno Joubert ráðgjafi alþjóða- og stofnanatengsla hjá Ponant, Sandra Weir yfirmaður Global Hospitality hjá Norwegian Cruise Line og Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri Cruise Iceland. Á meðal fundargesta voru einnig Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og sérfræðingar úr ráðuneytum og stofnunum. Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir meðeigandi hjá Instrument / Cohn & Wolfe á Íslandi stýrði fundinum.
Erindi voru jafnframt flutt af Sigurði Jökli, Hans Chen Braas svæðisstjóra CLIA fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin, Nikos Mertzanidis framkvæmdastjóra Evrópuhluta CLIA og Ingvari Erni Ingvarssyni sem hefur verið ráðgjafi fyrir geirann undanfarin ár en hann er einnig meðeigandi hjá Instrument / Cohn & Wolfe á Íslandi.
Á fundinum var farið yfir þróun skemmtiferðasiglinga á alþjóðavísu, stöðu Íslands sem áfangastaðar og þær breytingar sem orðið hafa á gjaldaumhverfi greinarinnar undanfarin ár. Sérstök áhersla var lögð á áhrif innviðagjalds, breytinga á tollfrelsi og og álagningar virðisaukaskatts á leiðangursskip í hringsiglingum um Ísland.
Fram kom hjá fulltrúum útgerða að Ísland njóti áfram mikils aðdráttarafls meðal farþega og sé talið einn eftirsóknarverðasti áfangastaður Norður-Atlantshafsins. Samhliða því bentu þeir á að ófyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi hefði haft veruleg áhrif á bókanir næstu ára, sérstaklega fyrir minni leiðangursskip sem byggja afkomu sína á langtímaáætlunum og sérhæfðum ferðum. Þá kom fram að markaðssvæði Norður Evrópu væri í nokkrum vexti, um 5% á árinu en Ísland væri eini áfangastaðurinn þar sem er samdráttur.
Stöðugleiki og fyrirsjáanleiki skiptir öllu
Í pallborðsumræðum og opnum samræðum fundarins var ítrekað bent á mikilvægi stöðugleika og fyrirsjáanleika af hálfu stjórnvalda. Þar kom meðal annars fram hjá Lilju Alfreðsdóttur að ferðamálastefna Íslands þyrfti að byggja á skýrum leikreglum og stöðugleika sem geri atvinnugreininni kleift að skipuleggja starfsemi sína til lengri tíma.
Hans Chen Braas, svæðisstjóri CLIA fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin, sagði að Ísland hefði alla burði til að vera áfram leiðandi áfangastaður í Norður-Atlantshafi.
„Ísland er einstakur áfangastaður sem nýtur mikillar virðingar meðal skemmtiferðaskipafélaga og farþega. Reynslan sýnir hins vegar að fyrirsjáanleiki skiptir sköpum þegar ákvarðanir eru teknar mörg ár fram í tímann. Okkar skilaboð eru einföld: stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi er forsenda þess að Ísland haldi áfram að vera samkeppnishæfur áfangastaður,“ sagði Hans Chen Braas.
Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, sagði fundinn hafa undirstrikað hversu mikilvægt væri að allir hagaðilar ættu reglulegt samtal um þróun greinarinnar en fulltrúar skipafélaganna hafa undanfarin ár heimsótt Ísland tvisvar á ári að lágmarki og markvisst unnið að því að byggja upp samtal við stjórnvöld.
„Það sem stóð upp úr á fundinum var sameiginlegur skilningur á því að fyrirsjáanleiki skiptir samfélög um allt land miklu máli. Áhrif breytinga á gjaldtöku og regluverki birtast ekki aðeins hjá útgerðunum sjálfum heldur einnig hjá höfnum, þjónustuaðilum og sveitarfélögum sem byggja að hluta til á þessum gestakomum. Það var afar ánægjulegt að sjá svo fjölbreyttan hóp hagaðila koma saman og ræða lausnir af hreinskilni og gagnkvæmri virðingu,“ sagði Sigurður Jökull.
Að fundi loknum fóru fram fjölmargir einstaklingsfundir milli fulltrúa CLIA, stjórnenda skemmtiferðaskipaútgerða, þingmanna, ráðuneyta og annarra hagaðila. Fundaröðin hélt áfram daginn eftir og var almenn ánægja meðal þátttakenda með þau tækifæri sem sköpuðust til beinna samskipta og upplýsingaöflunar.
Fundurinn fór fram skömmu eftir sveitarstjórnarkosningar, umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið var áberandi í stjórnmálum og Cruise Europe-ráðstefnan stóð yfir í sömu viku. Þrátt fyrir það var þátttökumet slegið á fundinum sem nú var haldinn í þriðja skiptið og mættu fjölmargir fulltrúar atvinnulífs, sveitarfélaga og stjórnvalda til fundarins og lögðu sitt af mörkum til mikilvægrar umræðu um framtíð skemmtiferðasiglinga á Íslandi.
Fleir myndir frá viðburðinum má sjá hér.