U
Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Margtalning gefur misvísandi upplýsingar

Um margra ára skeið hefur verið haldið utan um fjölda farþega sem koma með skemmtiferðaskipum á þann hátt að hafnir hafa sent inn farþegafjölda þeirra skipa sem komið hafa í höfn. Út frá því hefur myndast talnagrunnur sem segir til um skipakomur og farþegafjölda allra hafna.

Það liggur í hlutarins eðli að þegar skip hafa viðkomu á mörgum höfnum þá eru það sömu farþegarnir sem eru marg taldir. Áður var þetta ekki mikil skekkja en á undanförnum árum hefur það stór aukist að skipin sigli hringinn í kringum landið með viðkomu í allt að 10 höfnum á leiðinni. Þá er sami farþeginn marg talinn. 

Ef einungis eru taldir farþegar í Reykjavík og Hafnarfirði en það eru þær hafnir sem lang flestir farþegar hafa sem fyrstu viðkomuhöfn þá breytist myndin verulega. Í stað þess að ræða um rúmlega 510.000 farþega eins og samtals komu á allar hafnir á síðasta ári er réttara að tala um 175.000 farþega sem var fjöldinn í Reykjavík og Hafnarfirði.  Það vill segja að skipafarþegar erum um 10% af flugfarþegum á síðasta ári og þó þeir séu etv sýnilegri þá er fótspor þeirra umtalsvert minna.