Eins og þekkt er orðið tók við hröð fjölgun skemmtiferðaskipa til landsins eftir tveggja ára hlé í heimsfaraldrinum. Árið 2024 var slegið met þegar um 100 skip komu hingað til lands og stóðu undir samtals 1.209 skipakomum. Þar af voru 21,4% komanna í höfn í Reykjavík, en 78,6% í höfnum á landsbyggðinni.

Aukningin byggðist meðal annars á markvissri markaðssetningu Cruise Iceland sem hefur staðið í 20 ár, auknum farþegaskiptum og uppsafnaðri ferðaþörf eftir faraldurinn. Nú horfir þó til verri vegar.

Samdráttur blasir við víða og þyngsta höggið á landsbyggðinni

Örar og skyndilegar breytingar á rekstrarumhverfi skemmtiferðaskipa á Íslandi, allt frá haustmánuðum árið 2023, hafa hins vegar valdið óvissu meðal útgerða þeirra skemmtiferðaskipa sem sækja landið heim. Frá haustmánuðum 2023 hafa rekstrarskilyrði skemmtiferðaskipa á Íslandi skyndilega breyst mikið sem í bland við óvissu hefur valdið titringi meðal útgerða þeirra skemmtiferðaskipa sem sækja landið heim. Nú þegar hefur bókunum fyrir næstu ár farið mjög fækkandi – svo mikið að tala má um hrun – sem kemur sér sérstaklega illa fyrir minni hafnir og sveitafélög víða um land. Á síðustu kaupstefnu Cruise Iceland í Hamborg var augljóst að skipafélögin eru farin forðast Ísland þar sem stjórnvöld hafa trekk í trekk lagt til aukna gjaldtöku með aðeins nokkurra vikna fyrirvara. Og ekki hjálpaði mjög hátt innviðagjald sem leggst á farþega skemmtiferðaskipa, en gjaldið er 525% hærra en gistináttagjald hótela miðað við að tveir farþegar séu í káetu.

Skipakomur eru bókaðar með tveggja til fjögurra ára fyrirvara og því munu afleiðingarnar ekki að fullu koma fram fyrr en árið 2027. Samkvæmt núverandi bókunarstöðu er reiknað með 17% samdrætti í heildarfjölda skipakoma árið 2026 og 37% samdrætti árið 2027, miðað við árið 2024. Um raunbókunartölur er að ræða og verður beint tap ríkissjóðs því meira en 1.698 milljónir en það var tapið sem Reykjavik Economics áætlaði miðað við 30% samdrátt í skipakomum. Sé litið til brúttótonna, sem gefa betri mynd af umfangi greinarinnar, er búist við 12% samdrætti árið 2026 og 23% samdrætti árið 2027 – sem gefur til kynna að samdráttur sé bæði í komum stærri sem og smærri leiðangursskipa.

Fyrirsjáanleiki, samstarf og sanngirni skiptir öllu

Þótt að bókunarstaða sé í raun alltaf áætlun, þá hefur verið hægt að áætla með nokkurri vissu 1,5 til 2 ár fram í tímann miðað við þá hefð sem hefur skapast í bókunum og því eru þessar tölur teknar alvarlega. Breytingarnar á bókunarstöðu bitna þar að auki ekki jafnt á öllum höfnum þar sem að um er að ræða mismunandi skip með mismunandi markhópa og þarfir. Þær hafnir sem tóku á móti flestum skipum árið 2024, sem eru Reykjavík, Akureyri, Ísafjörður, Seyðisfjörður, Grundarfjörður og Vestmannaeyjar, horfa nú einnig fram á töluverðan samdrátt þar sem landsbyggðin kemur verst út eins og áður var nefnt. Versta dæmið er líklega Borgarfjörður Eystri sem fer úr 28 komum í aðeins eina árið 2027. Verið er að reisa samgöngumiðstöð í Reykjavík hjá Faxaflóahöfnum og þótt samdrátturinn þar verði ef til vill minni en í sumum landsbyggðarhöfnum, er ljóst að mikil forsendubreyting á sér stað jafnvel þar.

Bókunarstaða skemmtiferðaskipa á Íslandi fyrir árin 2026 og 2027 mun hafa veruleg áhrif á atvinnulíf, gjaldeyristekjur og uppbyggingu ferðaþjónustu víða um land, en Cruise Iceland hafði ítrekað óskað eftir því við fyrri ríkisstjórn að efnahagsleg áhrif gjaldtöku yrðu reiknuð og að allar ákvarðanir yrðu að íhuga vandlega þar sem áhrifin af þeim tækju fleiri ár að raungerast. Í vor horfði til betri vegar þar sem endurskoða átti ákvörðunina um innviðagjald, og með núverandi fjárlagafrumvarpi var ráðist í lækkun úr 2500 krónur niður í 2000 krónur fyrir árið 2026, og svo upp í 2500 krónur aftur fyrir árið 2027. Þetta breytir litlu fyrir skipafélögin í ljósi þess að gjaldið er þrátt fyrir allt margfalt hærra en gistináttagjaldið, lagt á börn jafnt sem fullorðið fólk og jafnvel þótt skip komist ekki að bryggju vegna veðurs. Þrátt fyrir viðleitni nýrrar ríkisstjórnar er ljóst að meira þarf til. Mikilvægt er að haustþingið taki þessa stöðu sem upp er komin alvarlega og bregðist við með því að skapa stöðugleika til næstu 10 ára, svo skipafarþegar geti haldið áfram að njóta alls þess besta sem áfangastaðurinn Ísland hefur upp á að bjóða.