Þann 5. ágúst síðastliðinn tók 47 manna hópur áhafnarmeðlima úr Scarlet Lady, skemmtiferðaskipi Virgin Voyages, þátt í hreinsunarverkefni Bláa hersins við Grindavík. Nokkur fjöldi skipa tekur þátt í verkefnum sem leggja áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni í hjá Bláa hernum og þekkt eru verkefni félaga AECO í strandhreinsunum.

Á meðan Scarlet Lady lá við bryggju í Reykjavík tóku skipverjar til hendinni og söfnuðu saman 1040 kílóum af plastrusli og öðrum úrgangi sem hafði safnast í fjörum og við strandlengju Grindavíikur . Eftir hreinsunarátakið leiddi Tómas J. Knútsson, stofnandi og leiðtogi Bláa hersins, þátttakendur í vettvangsferð um svæðið þar sem hann útskýrði umhverfisvandann sem plastmengun veldur í hafinu og mikilvægi þess að halda áfram aðgerðum sem þessum.

Ábyrg umgengni við náttúruna

Blái herinn, sem hefur starfað frá árinu 1995, hefur staðið fyrir yfir 300 hreinsunarverkefnum um land allt og safnað meira en 1.550 tonnum af rusli úr íslenskri náttúru með hjálp þúsunda sjálfboðaliða. Verkefni þeirra eru ekki bæði mikilvæg fyrir íslenskt samfélag, heldur eru þau einnig hluti af alþjóðlegu umhverfisátaki sem tengist World Cleanup Day sem haldinn er árlega í september.

Virgin Voyages hefur sett sér metnaðarfull markmið um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Með þátttöku í hreinsunarverkefnum sem þessum sýnir fyrirtækið vilja sinn til að leggja sitt af mörkum í ábyrgari umgengni við náttúruna. Jill Stoneberg, yfirmaður samfélags- og umhverfismála hjá Virgin Voyages, segir samstarfsverkefnið mikilvægt skref í vegferðinni í átt að sjálfbærum siglingum. „Við erum staðráðin í að nýta þau tækifæri sem við höfum, hvar sem við leggjum að bryggju, til að styðja samfélög og vernda náttúruna,“ segir hún.

Þetta var í fyrsta skiptið sem áhöfn Scarlet Lady tekur þátt í verkefnum Bláa hersins á Íslandi, en báðir aðilar vonast til að halda samstarfinu áfram næstu ár.